Á aðalfundi ÞRÍR í gærkvöldi var samþykkt að hefja undirbúning að stofnun þríþrautasambands Íslands. Í stjórn þess myndu eiga sæti fulltrúar allra þríþrautafélaga á landinu. Núna eru þegar starfandi félög í Reykjavík, Hafnarfirði, Vestfjörðum og einherjar á Selfossi og víðar munu fyrr eða síðar stofna smá félag utan um sig. Ritari þessara lína mun kalla saman undirbúningsfund með fulltrúum félaga og öðrum áhugamönnum eftir áramót. Sambandið verður andlit þríþrautafólks út á við og leitast við að breiða út fagnaðarerindið í sem ríkustum mæli.
Á aðalfundinum var að öðru leyti farið yfir keppnir ársins, kynntar keppnir á komandi ári og þríþrautafólk ársins var tilkynnt. Fyrir valinu urðu María Ögn Guðmundsdóttir og Steinn Jóhannsson, sem þóttu öðrum sigursælli og fengu þau gjafabréf í Afreksvörum í Glæsibæ.
Margar keppnir eru fyrirhugaðar næsta sumar, allt frá sprettþraut í Kópavogi upp í hálfan Ironman í Hafnarfirði. Einnig verður ólympísk þraut í Hafnarfirði í samvinnu ÞRÍR og ÞRÍH. Stóra takmarkið er þó CHallenge Kaupmannahöfn 15. ágúst en þangað stefna nú 25 manns.
Þríþrautasamband Íslands
05 Saturday Dec 2009
Posted in Uncategorized
Er búið að birta keppnisdagskrá þríþrautarfólks fyrir 2010 á netinu? Takk.
Keppnisskráin verður birt hér um leið og hún er frágengin. Þetta er dagaspursmál.