Gunnlaugur Júlíusson er staddur í World Class í Laugardalnum og ætlar að hlaupa 100 km á bretti í þágu góðs málefnis og vekja um leið athygli á bók sinni. Velunnarar Grensásdeildarinnar eru hvattir til að kaupa bókina beint af höfundi til að deildin fái sem mest í sinn hlut. Ef Gunnlaugur lýkur þessu hlaupi er það Íslandsmet.
Vitað er að margir innipúkar nota brettið fyrir langa hlaupið á laugardegi og þrauka þá 30 km. Einn hefur hlaupið heilt maraþon á bretti og þá á 3 og hálfum tíma. Það þætti gott utanhúss.
Sjá nánar hér: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/12/05/gunnlaugur_hleypur_til_gods/
Advertisement